Saka ríkið um róttækt sinnuleysi

"Það má líkja þessu við róttækt sinnuleysi," hafði samningamaður úr röðum Bandalags háskólamanna á orði í samtali við hringbraut.is í gærkvöld þegar rætt var við hann um nauðsynlega aðkomu stjórnvalda að kjaradeilu BHM og ríkisins en þar er hnúturinn orðinn stamahvass.


Samkvæmt heimildum á hringbraut.is vilja BHM-liðar sjá á spil stjórnvalda áður en þeir hefja samningaviðærður við viðsemjendur sína af alvöru; margar ákvarðanir ríkisvaldsins sem geti liðkað fyrir samningum þurfi að liggja skýrt fyrir áður en haldið verði lengra innan veggja Karphússins. 


Engin ástæða virðist vera fyrir því að samninganefndir bandalagsins og ríkisins hittist á næstu dögum eftir viðskipti gærdagsins, en hvorki gekk ná rak í samningaumleitunum þann daginn, eða eins og Páll Halldórssson formaður félagsins orðaði það: "Það gerðist nákvæmlega ekkert."


Háskólamenn búa sig undir langvinnt verkfall sem mun, eftir atvikum, hafa víðtæk áhrif innan raða atvinnulífsins, enda sjálft eftirlitskerfi alls matvælaiðnaðarins að lamast.