Sakar ráðherra um vanþekkingu um skaðaminnkun

Hafrún Elísa Sigurðardóttir, sérfræðingur í skaðaminnkun hjá Rauða krossinum, er allt annað en ánægð með Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra. Ástæðan er ummæli sem Bjarni lét falla í hádegisfréttum Bylgjunnar í gær um möguleikann á slökun á fíkniefnalöggjöf Íslands. Bjarni taldi að ef slakað yrði verulega á löggjöfinni myndi það auka aðgengi að efnunum um of og að sú þróun yrði „mjög óæskileg.“ Þess vegna vill hann fara hægt í sakirnar með að lýsa fíkniefni lögleg á Íslandi.

Hafrún segir að Bjarni rugli hér saman tveimur ólíkum hugtökum, annars vegar lögleiðingu og hins vegar afglæpavæðingu. Greinamunur er gerður á þessu tvennu í athugasemdum við frumvarp heilbrigðisráðherra um afglæpavæðingu neysluskammta. Þar er afglæpavæðing skilgreind sem svo að með henni séu heimiluð kaup og varsla á takmörkuðu magni, neysluskömmtum, af ávana- og fíkniefnum til eigin nota. Lögleiðing myndi hins vegar fela í sér að lög sem banna vörslu og neyslu fíkniefna yrðu felld úr gildi og að þar með gæti ríkisvaldið haft eftirlit með og skattlagt sölu og notkun þeirra.

„Ég held að þetta sé mjög alvarlegt, að halda áfram að refsa fólki og eins og við sjáum hefur refsistefnan ekki neitt upp á sig og er bara hættuleg. Við viljum sjá breytingar á því,“ hefur Vísir eftir Hafrúnu Elísu.

„Ég myndi hvetja ráðherrana til að kynna sér aðeins skaðaminnkandi hugmyndafræði og gagnreynda þekkingu og rannsóknir annars staðar í heiminum þar sem afglæpavæðing hefur verið tekin upp.“