Ég vil ekki svona þjóðfélag!

Nokkuð hefur hitnað undir utanríkisráðherra vegna tengsla hans við Árna Gunnarsson kvikmyndagerðarmann á Sauðárkróki. Árni fékk 3ja milljóna króna styrk til að gera heimildarmynd um flóttamenn frá ráðuneyti Gunnars Braga Sveinssonar með því að sækja um hann. Þá fékk Árni, sem er fyrrverandi aðstoðarmaður framsóknarráðherra, fyrrum formaður Flóttamannaráðs og fyrrum varaþingmaður Framsóknarflokksins, einnig 3ja milljóna króna styrk frá forsætisráðuneyti Sigmundar Davíðs.

Björn Valur Gíslason varaþingmaður hefur haldið fram að styrkveitingin sé spilling. Formaður BÍL hefur spurt hvort allir hafi þessi tækifæri. Sjálfur segist Árni ekki hafa haft tíma til að bíða eftir styrk frá Kvikmyndasjóði. Sigmundur Davíð  kemur fyrir í mynd hans.

Á Alþingi í gær gerði  Guðmundur Steingrímsson, þingmaður Bjartrar framtíðar, harða hríð að utanríkisráðherra vegna tengsla hans og vináttu við Árna. „Ég geri þungar athugsemdir við hvernig staðið er að þessum styrkveitingum. Mér blöskrar,“ sagði þingmaðurinn og ítrekaði að bæði Árni og Gunnar Bragi kæmu úr Skagafirði, þeir væru vinir og vel tengdir.

 „Ég vil ekki svona þjóðfélag,“ bætti Guðmundur við. Hann sagði fullt af fólki út um allt land með alls konar hugmyndir til að skapa. Mismunun manna á millum megi ekki að velta á hvort einhver sé vinur ráðherra eða ekki.

Þá sé sérstakt hneyksli að féð sem fari til Árna sé eitt það fyrsta sem ráðherra geri við peninga sem renni til nýrrar skrifstofu þróunarmála eftir umdeildar breytingar þar sem Þróunarsamvinnustofnun var lögð niður fyrir áramót. Eitt fyrsta verk ráðherra í þróunarmálum eftir kerfisbreytingu sé að deila út pemigum til vina sinna.

„Þetta er ekki í lagi. Við þingmenn eigum ekki að koma að svona kjaftæði,“ sagði þingmaðurinn Guðmundur Steingrímsson á Alþingi í gær.