Sakar presta um illgirni og frekju

Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, er ómyrkur í máli í nýjum ritstjórnarpistli þar sem hann fordæmir þá presta sem bera við  svokölluðu samviskufrelsi sem komi í veg fyrir að þeir geti gift samkynhneigt fólk.

Í pistlinum rekur Þórður Snær undir fyrirsögninni „Takið samviskufrelsið og troðið því“ að „samviskufrelsi“ sé orð sem prestar einir noti um afstöðu sína gagnvart samkynhneigðum. Á sama tíma og fækki í Þjóðkirkjunni og mikill meirihluti þjóðarinnar vilji aðskilnað ríkis og kirkju sé ekki til neitt sem kallist samviskufrelsi í lögum.

„En fyrst og fremst þurfum við að verða sammála um að samviskufrelsi, í þeim skilningi sem sumir prestar eru að nota hugtakið, er ekkert annað en fínt og sakleysislegt orð sem notað er til að fela fordóma, forpokun, afturhald, andúð, hræðslu, frekju og illgirni lítils hóps manna sem vill fá að skilgreina samfélagið sem við búum í út frá sínu heimatilbúna siðgæði,“ skrifar ritstjóri Kjarnans.

Harðar deilur eru einnig meðal presta vegna málsins eins og Hringbraut greindi frá í gær.