Sakar lögregluna í eyjum um þöggun

Talskona Stígamóta efast um hæfi lögreglustjórans í Vestmannaeyjum til þess að gæta hagsmuna brotaþola kynferðisofbeldis. Lögreglustjórinn hefur brýnt fyrir þeim sem koma að kynferðisbrotamálum á Þjóðhátíð að þeir veiti fjölmiðlum ekki upplýsingar um málin.
 

 \"Ég verð að segja að ég trúði vart eigin augum þegar ég las þetta bréf, ef rétt er eftir lögreglustjóranum haft. Ég undrast hvar hún hefur verið undanfarin misseri og hversu hæf hún er til að gæta hagsmuna brotaþola í kynferðisafbrotamálum, þegar krafan er upplýst umræða og þöggun er það síðasta sem brotaþolar geta hugsað sér,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta í samtali við RÚV í gærkvöld. 

Í bréfi Páleyjar Borgþórsdóttur, lögreglustjórans í Vestmannaeyjum, brýnir hún fyrir þeim sem koma að hugsanlegum kynferðisbrotamálum á þjóðhátíð, að þeir gefi fjölmiðlum engar upplýsingar um málin. Vefmiðillinn visir.is fjallaði fyrst um málið í dag, en þar kemur fram að meðal þeirra sem fengu bréfið eru starfsmenn neyðarmóttöku, heilbrigðisstarfsmenn, lögreglumenn og sjúkraflutningamenn. Páley segist sjálf hafa komið að fjölda kynferðisafbrotamála með þolendum og hafi upplifað með þeim hversu erfitt sé að standa upp eftir kynferðisbrot. Hún segir málið ekki snúast um þöggun. Hún hafi sent bréfið til að vernda þolendur kynferðisbrota. Guðrún telur málið hins vega skýra þöggun. 

\"Ef ekki má ræða þetta mál skil ég ekki hverra hagsmuna er verið að gæta, annarra en þeirra sem halda útihátíðir og svo þeir sem fremja brotin. Eg vil ekki ætla lögreglustjóranum að vera að gæta þeirra hagsmuna en í raun er það þannig.“

Hún segir því að lögreglustjórinn verndi þolendur kynferðisofbeldis ekki með þessu. 
\"Nei og ég undrast þennan misskilning lögreglustjórans, ef hún telur sig vera að gæta þeirra hagsmuna. Hún er eflaust í góðri trú en þá vantar hana yfirsýn og innsýn,“ segir hún í samtali við RÚV.