Rúmlega helmingur Reykvíkinga er hlynntur Borgarlínu samkvæmt könnun sem fjallað er um í Fréttablaðinu í dag.
Í frétt blaðsins er fjallað um bæði Borgarlínu og þéttingu byggðar og sýnt hvernig afstaða kjósenda flokkana til þessa málefna helst í hendur við samstarf flokkana í borgarstjórn.
Könnunin sýnir að kjósendur þeirra flokka sem mynda núverandi meirihluta í Reykjavík eru líklegri til að vera hlynntir Borgarlínu og frekari þéttingu byggðar en kjósendur annarra flokka. Þá eru flokkarnir sem standa utan meirihluta líklegri til að vera heldur andvígir bæði Borgarlínu og þéttingu byggðar.
„Það er ekki nýtt að Sjálfstæðisflokkurinn sé klofinn i þessu en það gildir reyndar um margt annað,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri um málið.
Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, segir skiptar skoðanir á málinu alfarið borgarstjóra sjálfum að kenna og könnunin kemur henni ekki á óvart: „Hún talar inní það menningarstríð sem borgarstjóri hefur skapað í borginni þar sem fólki er skipað í fylkingar eftir því hvernig það velur að lifa sínu lífi. Meirihlutaflokkunum hefur algjörlega mistekist að skapa sátt um framtíðar samgöngur og skipulag í borginni sem hefur leitt til vantrausts og óánægju,” segir Hildur við Fréttablaðið.
Athygli vekur að kjósendur Framsóknar virðast stilla sér frekar Sjálfstæðisflokki, Miðflokki og Flokki fólksins en mun síður með flokkunum sem mynda meirihlutann.
Aðspurður túlkar Einar könnunina ekki þannig að myndun meirihluta sé skrifuð í skýin. „Mér finnst þetta aftur á móti senda skýr skilaboð um að borgarbúar vilji að það sé áframhaldandi sátt um samgöngumál borgarinnar á grundvelli Samgöngusáttmálans og uppbygging haldi áfram. Ég held að allir séu sammála um að efla þurfi almenningssamgöngur.“
Einar heldur hins vegar að borgarbúar séu ekki að ræða Borgarlínu við morgunverðarborð sín.
„Umræðan um Borgarlínu og þéttingu byggðar hefur verið föst í skotgröfum og upphrópunum og því vill Framsókn breyta. Framsóknarflokkurinn styður Samgöngusáttmálann sem formaður flokksins hafði forgöngu um. Þar er markmiðið að einfalda alla umferð fyrir akandi, almenningssamgöngur, hjólandi og gangandi,“ segir Einar. Útfærslan sé hins vegar meiri verkfræði en pólitík.