„Það að Íslandsdeildin skuli sitja hjá finnst mér sýna einhvers konar kjarkleysi hjá félaginu,“ segir Fríða Rós Valdimarsdóttir, formaður Kvenréttindafélags Íslands um afstöðu Íslandsdeildar Amnesty International til afglæpavæðingar vændis.
Heimsþing Amnesty International samþykkti á fundi sínum í Dyflinni í gær umdeilda tillögu þessa efnis. Íslandsdeild Amnesty sat hjá í atkvæðagreiðslunni auk þess sem samtökin stóðu að breytingartillögu sem var þó felld.
Hún segir að rannsóknir hafi sýnt að vændi er skaðlegt og lögleiðing dragi ekki úr ofbeldi gegn vændisstarfsmönnum. Ofbeldi gagnvart fólki hafi minnkað með banni við kaupum á vændi: \"Nýjustu tölur frá Noregi sýna að ungir strákar hafa hætt að kaupa vændi sem er mjög merkilegt. Það er svo mikil skaðaminnkun í því og það er það sem oft gleymist í umræðunni að vændiskaupin eru líka skaðleg. Mér finnst eins og að Amnesty sé byrjað að skipuleggja eigin jarðarför með þessu.“