Sakamenn: alveg glataðir dómar!

Rithöfundurinn Guðmundur S. Brynjólfsson er ekki frá því í nýjum pistli sínum á hringbraut.is að nær allir dæmdir sakamenn séu hissa eða gáttaðir og jafnvel pínu reiðir vegna óskiljanlegra dóma yfir sér.

Jafnvel venjulega fólkið í vondu fangelsunum sé álíka gáttað á örlögum sínum og fína fólkið í flottu fangelsunum. Og hér hrannist dæmin upp: \"Eyjólfur Wilhelm Steindór Bjarnason sem var dæmdur í vor fyrir að stela grænum Subaru Forester árgerð 2006 fyrir utan Rúmfatalagerinn í Kópavogi og aka síðan bílnum undir áhrifum amfetamíns upp í Borgarnes og þar á staur, segir að dómurinn sé óskiljanlegur, kolrangur og ekki í samræmi við lög og reglur.\"

Dæmin séu fleiri: \"Bjarni B. Th. Böðmóðsson – sem hefur hlotið nokkra dóma fyrir brot gegn valdstjórninni, einn stuld á vodkapela og fyrir eitt innbrot í sportvörubúð á Reykjavíkursvæðinu – hefur sagt í samtali við fjölmiðla að fangavistin sé alls ekki nógu góð og flutningur á milli dómsals og afplánunarstaðar fari fram í ómögulegum bíl.\"

Og konur líka, nefnir Guðmundur: \"Eins hefur vakið athygli að Elínbjörg Brynbjörg Björnsdóttir, sem nýverið var dæmd í fangelsi vegna 40 ætlaðra e-taflna sem fundust heima hjá henni og eins vegna þess að hún sveik snjallsíma út úr Elko og geisladisk með Álftagerðisbræðrum, vill meina í samtölum við alla fjölmiðla að hún telji að dómurinn sé ranglátur og í raun fjarstæðukenndur, og alls ekki  eins og hún hefði viljað hafa hann.\"

Rithöfundurinn tekur skýrt fram að ekki hafi náðst í fleiri sakamenn við vinnslu greinarinnar en benda megi áhugasömum á að fjallað er um alla helstu þjófa  og ræningja þjóðarinnar – og við þá rætt – í öðrum fjölmiðlum.