Saka sundlaugarvörð um dónaskap og fordóma: „eins og önnur pör vorum við að spjalla og kyssast“

Steina Daníelsdóttir var ásamt kærustu sinni, Kolbrúnu Ósk Ólafsdóttur í Grafarvogslaug fyrir nokkrum dögum. Steina og Kolbrún kysstust fyrir framan sundlaugargesti en sú saklausa og eðlilega ákvörðun átti eftir að draga dilk á eftir sér. Á vef Fréttablaðsins er greint frá því að eftir að Kolbrún fór upp úr til að hringja símtal hafi sundlaugarvörður tjáð henni að þær hefðu sýnt af sér óviðeigandi hegðun. Í samtali við Fréttablaðið segir Steina:

„Eins og önnur pör þá vorum við að spjalla og kyssast inná milli eins og við gerum alltaf í sundi. Höfum reyndar alltaf verið mjög meðvitaðar um að vera ekki að gera það of mikið þar sem það er fólk getur verið viðkvæmt fyrir fjölbreytileika lífsins.“

Sundlaugarvörðurinn tjáði Steinu að gestum hefði þótt þær sýna af sér óviðeigandi hegðun. Steina segir að þær hafi báðar orðið hissa og hvorki hafi verið um tungukoss að ræða né hafi þær setið í fangi hvors annars eða rætt um óviðeigandi hluti. Þá sakar hún sundlaugarvörðinn um að hafa hermt eftir sér. Steina segir í samtali við Fréttablaðið:

„Það er löngu vitað að það eru einstaklingar í okkar samfélagi sem eru viðkvæmir fyrir fjölbreytileikanum. Við erum komin mjög langt en kommentakerfi landsins og fleira sýna hins vegar enn þá hversu mikið er eftir.“

Á vef Fréttablaðsins má lesa ítarlega umfjöllun um málið.