Saka Ingu Sæland og fatlaðan bróður hennar um skrum á Laugavegi: „Ömurlegur popúlismi“

Veitingamaður og bæjarfulltrúi eru síður en svo sáttir við myndband sem Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, birti á Facebook-síðu sinni í gær þar sem hún hjólar í Dag B. Eggertsson, borgarstjóra Reykjavíkur, og meirihlutann í borginni.

Í myndbandinu, sem tekið er í göngugötunni á Laugaveginum, útskýrir Inga að hún hafi fylgt bróður sínum á fund í þessari þekktu verslunargötu, eða eins og Inga segir:

„Þessari frábæru göngugötu sem er nú þess valdandi að fötluðu fólki er gert nánast ómögulegt að ferðast um götuna,“ segir Inga og bætir við að hún og fatlaður bróðir hennar hafi þurft að leggja bifreið sinni lengst í burtu og láta sig hafa það að ganga og ganga.

Sjá einnig: Inga Sæland sár og reið eftir ferð niður Laugaveg með fötluðum bróður sínum

Ólafur Örn Ólafsson veitingamaður í miðbænum vekur athygli á málinu á Twitter og segir:

„Æ kræst - þarna rétt handan við hornið er merkt stæði fyrir fatlaða. Það er jafn langt frá því þaðan sem þetta myndband er tekið og úr merktu stæði á efri hæð Kringlunar og að innganginum í H&M og það er búið að gera mikla gangskör í að setja upp rampa um allt í miðbænum,“ segir hann.

Svanborg Sigmarsdóttir, sem starfar fyrir Viðreisn í borginni, segir:

„Þar sem fatlaðir hafa leyfi til að aka Laugaveg. Hefði ekki verið hægt að hleypa manninum amk út fyrir framan hvar hann stendur á næst síðustu mynd? (jafnvel leggja).“

Karl Pétur Jónsson, bæjarfulltrúi Neslistans á Seltjarnarnesi, segir einfaldlega:

„Ömurlegur popúlismi.“

Ólafur tekur undir það:

„Já þetta fer í mig því þetta er ekki byggt á nokkrum rökum eða samanburði við neitt - fyrir nú utan það að fólk með skilti fyrir fatlaða í bílnum sínum hefur einmitt leyfi til að keyra þarna, hvað sem svo fólki kann að finnast um það.“

Smelltu hér til að sjá myndband Ingu.