Sagnfræðingurinn sem varð bankastjóri

Hvar ætlar Kvika banki að skera sig úr og keppa við hina bankana? Þetta er á meðal þess sem Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku banka, ræðir um í þættinum Viðskipti með Jóni G. á Hringbraut þessa vikuna, en þátturinn var frumsýndur í gærkvöld.

Bankinn á rætur í níu fjármálafyrirtækjum sem hafa sameinast á undanförnum árum. Þegar hann var skráður í kauphöllinni Nasdaq á dögunum urðu strax nokkur viðskipti með bréf í honum við opnun markaðarins og nemur markaðsvirði hans núna rúmum 15 milljörðum króna. Eigið féð er um 11 milljarðar og tekjur á síðasta ári um 5 milljarðar.

Þess má geta að Ármann er sagnfræðingur sem fór í MBA-nám í Bandaríkjunum á sínum tíma og þaðan í bankaheiminn.

Þáttinn má nálgast á vefnum hringbraut.is eins og alla aðra þætti stöðvarinnare undir fipanum sjónvarp.