Portúgalskir fjölmiðlar fullyrða að Loftleiðir, dótturfélag Icelandair, hafi lagt fram tilboð í 49 prósenta hlut Azores Airlines en það er að fullu í eigu stjórnvalda portúgalska sjálfstjórnarsvæðisins á Asoreyjum. Forsvarsmenn Loftleiða segja að ekkert tilboð hafi verið lagt fram heldur eingungis tillaga um hvernig samningaviðræður gætu farið fram til næstu sex mánaða.
Þetta kemur fram í portúgölskum fjölmiðlum. Lítist stjórnvöldum vel á tilboðið verður næsta skref að hefja formlegar viðræður.
Nánar á
http://www.ruv.is/frett/leggja-fram-tilbod-i-flugfelag-asoreyja