Edda Jörundsdóttir hjúkrunarfræðingur, segist hafa sagt upp störfum á Landspítalanum vegna þess að samningsrétturinn hafi verið tekinn af henni með lögum og það sætti hún sig ekki við.
Þetta kom fram í þættinum Þjóðbraut sem frumsýndur var fyrr í vikunni og endursýndur núna í hádeginu á Hringbraut, en þar ræddi Páll Magnússon við Eddu og Höllu Þorsteinsdóttur, hjúkrunarfræðing sem báðar hafa unnið um árabil á Landspítalanum í Fossvogi; Edda hefur starfað þar sem svæfingarhjúkrunarfræðingur og Halla sem gjörgæsluhjúkrunarfræðingur.
Þær eru í hópi rösklega hundrað hjúkrunarfræðinga sem sagt hafa upp störfum á innan við viku eftir að lög voru sett á verkfall þeirra.
Edda sagði að með því að vinna aðra hverja viku og helst sem flesta frídaga gæti hún með besta móti togað laun sín upp í rétt ríflega 300 þúsund krónur eftir skatta og gjöld.
Halla kvaðst hafa starfað sem sjúkraliði um tíu ára skeið áður en hún fór í fjögurra ára hjúkrunarnám. Laun hennar hefðu hækkað um 14 þúsund krónur frá því hún var sjúkraliði þar til hún kom aftur til starfa eftir allt námið. Það hefði verið allt og sumt.
Halla sagði ennfremur í þættinum að hún væri á leiðinni til Svíþjóðar til starfa og náms. Þær sögðust þekkja starfssystkini sem myndu hætta og ekki snúa aftur - hver svo sem niðurstaðan yrði úr þessu í kjaramálum hjúkrunarfræðinga, en allt stefnir í að kjör þeirra verði ákveðin af kjaradómi sem að öllu óbreyttu tekur til starfa eftir næstu mánaðamót.