Fyrrverandi yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sem sagður er hafa áreitt samstarfskonur sínar kynferðislega, sagði trúnaðarstörfum sínum fyrir H-listann í Vestmannaeyjum lausum í gær eftir fréttaflutning af málinu. Forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja segir málið vera í farvegi. Þetta kemur fram á Vísi.
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær var sagt frá því að fyrrverandi yfirmaður sjúkraflutninga hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands sé talinn hafa áreitt fjórar samstarfskonur sínar kynferðislega. Þetta sýnir niðurstaða athugunar sérfræðinga sem forstjóri stofnunarinnar, Herdís Gunnarsdóttir, lét gera eftir að kvörtun barst í febrúar síðastliðnum frá fjórum konum sem höfðu starfað undir stjórn mannsins.
Fréttastofa hefur niðurstöðu athugunarinnar undir höndum sem og bréf forstjóra stofnunarinnar til meintra þolenda í málinu. Þar segir að það sé ótvíræð niðurstaða að brotið hafi verið á konunum fjórum. Brotin feli bæði í sér kynbundna og kynferðislega áreitni og að sum þeirra hafi verið gróf og niðurlægjandi. Þá er jafnframt talið að framkoma mannsins teljist gróf misnotkun á valdi yfirmanns. Málið hefur verið tilkynnt til Embættis Landlæknis. Í samtali við fréttastofu í gær sagði ein kvennanna sem kvartaði undan framferði mannsins að þær hygðust kæra hann til lögreglu á næstunni.
Ítarlega er fjallað um málið á Vísi.