Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG, gaf í skyn við fjárlagaumræðuna á Alþingi í gærkvöld að nærstaddur þingmaður væri drukkinn.
„Það er ekki hægt að láta bjóða sér að menn séu flissandi úti í sal undir áhrifum.“
„Ha,“ sagði þá Einar K. Guðfinnsson þingforseti en aðhafðist ekki frekar.
Kurr fór um salinn en hvorki brást þingforseti við né kom í ljós hvaða drukkna þingmann Lilja Rafney átti við eða hvað hún átti við með að kvarta undan flissandi þingmanni „undir áhrifum“.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir gerði alvarlega athugasemd við fundarstjórn forseta, það er að hann skyldi ekki ávíta Lilju eða bregðast við með öðrum hætti.
Enn liggur ekki fyrir hver hinni meinti drukkni flissandi þingmaður er.