Saga og sérstaða herjólfs skoðuð

Saga Herjólfs og sérstaða í bráðum 60 ár verður umfjöllunarefni sjónvarpsþáttarins Atvinnulífið á hringbraut í kvöld, en rekstur skipsins hefur mjög verið til umræðu í samfélaginu á síðustu misserum eftir tilkomu Landeyjahafnar.

Núverandi skip er það þriðja í röðinni en mjög hefur verið rætt um að kaupa til landsins aðra ferju sem hentar betur fyrir nýja höfn í Landeyjum en það sem núna sinnir þessari mikilvægu þjónustu við Eyjamenn og raunar landsmenn alla og erlenda ferðamenn.

Á árum áður var rekstur Herjólfs á hendi Skipaútgerðar ríkisins en hefur á undanförnum árum verið sinnt af Eimskipafélagi Íslands, en mikið vatn hefur runnið til sjávar frá því fyrstu siglingarnar á milli Eyja og Þorlákshafnar hófust og tóku þá á fimmtu klukkustund. Núna tekur siglingin ekki nema hálftíma frá Landeyjum inn í Friðarhöfn. Þá hefur orðið alger bylting hvað varðar farþegafjöldann um borð eftir mikla fjölgun erlendra ferðamanna til landsins en þeir eru sólgnir í að heimsækja náttúruparadísina Vestmannaeyjar.

Gestgjafi þáttarins í kvöld, sem hefst klukkan 21:00 er Gunnlaugur Grettisson rekstrarstjóri Herjólfs.