Saga illmenna endurtekur sig

 

Listamennirnir Hallveig Rúnarsdóttir, Erpur Eyvindarson, Hilmar Örn Hilmarsson og Bjarni Frímann Bjarnason fara með fordæmalaust sviðsverk þar sem þau fara í „skapandi hakkavél“ í gegnum mistök og viðburði í mannkynssögunnar og hvernig mistök mannanna sífellt endurtaka sig. Linda Blöndal spjallar í Lífinu í kvöld kl. 20:45 við Hallveigu, Eyvind og Bjarna, m.a. um hina „illu hneigð“ mannkyns og hvernig hægt er að koma slíkri söguskoðun á framfæri.

Trúðarbrögð, heimspeki og listir hafa í árþúsundir fjallað um hina „illu hneigð“ mannkyns og að það sé okkur eðlislægt að endurtaka mistök kynslóðanna. Fjórmenningarnir skoða söguna – langt aftur fyrir tíma krists. Harmljóð, tregasöngvar, rapp og fullt annað sem þér hefði aldrei dottið í hug að væri hægt að sjóða saman – þetta verður á sviði Gamla bíós sem hluti af Listahátíð í Reykjavík annað kvöld, fimmtudag.