Safnað fyrir fanneyju: „við þiggjum alla hjálp. getur þú hjálpað?“

Daginn eftir að Fanney Eiríksdóttir, sem aðeins er 32 ára, fékk að vita að hún og maður hennar, Ragnar Snær, ættu von á dreng, var þeim tilkynnt að hún væri með krabbamein. Þau áttu eitt barn fyrir og aldrei kom til greina af þeirri hálfu að stoppa meðgönguna. Erik Fjólar kom í heiminn nokkrum mánuðum síðar, heilbrigður og myndarlegur drengur. Krabbameinið er búið að dreifa sér en fjölskyldan ætlar ekki að gefast upp, börnin þurfa á móður sinni að halda. Fanney og Ragnar sögðu sögu sína í Íslandi í dag í gær.

\"\"Í þættinum lýsti Fanney hvernig var að fá þessar óhuggulegar fréttir: „Ég held að við höfum bara pínulítið frosið. Hann biður um að fá að skoða mig aðeins betur og þá brotnaði ég pínu niður og byrjaði að gráta en síðan hristi ég það af mér.“

Þá kom í ljós að Fanney var með æxli á stærð við handbolta, en þetta var daginn áður en þau áttu að fá að vita kyn barnsins en Fanney var komin 20 vikur á leið. Þau ákváðu að bíða með alla meðferð og hefja lyfjameðferð þegar barnið kæmi í heiminn. Ragnar segir:

„Ég setti þetta strax bara algjörlega í hendurnar á henni og það tók hana örfá sekúndu brot að svara að það kæmi ekki til greina að fara þá leið, það var aldrei möguleiki. Fyrir mér var bara númer 1,2 og þrjú var alltaf hennar heilsa og velferð.“

Fanney og Ragnar fengu síðan þær fréttir að meinvörp væru á nokkrum stöðum í lungum, bakvið hjartað, í beinum og víðar. Þegar krabbamein hefur dreift sér á þennan hátt er það skilgreint sem fjórða stigs krabbamein, síðasta stigið.  Fanney segir:

„Hugarfar mitt er ekki þannig að þetta sé orðið svona og svona og ég sé að fara deyja. Ég vil ekki \"\"hugsa svona. Ég á tvö falleg yndisleg börn sem ég veit að þarfnast mín og ég ætla gera allt sem ég get til að vera til staðar fyrir þau í framtíðinni. Maður verður bara að reyna að vera jákvæður og hafa húmorinn í lagi. Þetta er bara mitt verkefni og ég þarf bara að takast á við það.“ 

Fjölskyldan þarf á stuðning að halda á þessum erfiðu tímum. Einn af þeim sem styður við bakið á fjölskyldunni og skorar á aðra að gera slíkt hið sama er Gunnleifur Gunnleifsson fyrrverandi landsliðsmarkvörður. Hann segir:  „Hvet fólk til að hjálpa þessu yndislega fólki. Ragnar Snær og Fanney.“

Þá segir Ragnar á Facebook: „Þið megið svo endilega dreifa boðskapnum út um allt. Við þiggjum alla þá hjálp sem við mögulega getum fengið. Getur þú hjálpað? Einhver sem þú þekkir? Nú þurfum við að kýla á þetta saman af öllum lífs og sálarkröftum! Við munum ekki gefast upp, sama hvað!“

Rknr: 0536-26-170487 - Kennitala: 100387-2209
Kass: 866-0851 - Aur: 866-0851

Hér er hægt að sjá innslagið í heild sinni.