Á laugardaginn næstkomandi verður fyrsti Bjarkaleikurinn spilaður í minningu Bjarka Sigvaldasonar sem lést úr krabbameini þann 27. júní á síðasta ári.
Það eru félögin HK og Breiðablik sem spila á mótinu sem haldið verður laugardaginn 11. janúar klukkan 11:15 í Kórnum í Kópavogi en félögin í samráði við Ástrósu Rut Sigurðardóttur, ekkju Bjarka, hafa ákveðið að stefna á leik milli liðana einu sinni á ári þar sem selt verður inn. Allur ágóðinn rennur óskertur í gott málefni í hvert sinn.
Bjarki barðist við krabbamein í sjö ár en eftir hetjulega baráttu með eiginkonu sína við hlið, hafði sjúkdómurinn betur. Bjarki var aðeins 32 ára gamall þegar hann lést og eftir sátu Ástrós og barnung dóttir þeirra.
Félögin og Ástrós ákváðu að þessu sinni að styrkja Ljónshjarta, félag fyrir ungt fólk sem misst hefur maka og börn og eru frjáls framlög við innganginn fyrir leik.