Safna fé fyrir betra aðgengi fatlaðra

Veitingahúsið Naustið er fjölskyldurekinn sjávarréttastaður á Húsavík í eigu Elínar Kristjánsdóttur og Ingunnar Ástu Egilsdóttur. Veitingahúsið sem starfað hefur síðustu 5 ár er að skipta um aðsetur og verður til húsa í fornfrægu húsi, Seli, sem staðið hefur autt í áratug. Húsið var hins vegar í mjög slæmu ástandi og eru að sögn eigenda einungis tveir kostir í stöðunni að ráðast í endurbyggingu eða rífa húsið og byggja nýtt. Ákvörðun hefur nú verið tekin um að endurbyggja og bjarga húsinu sem byggt var 1931.

\"Augljóslega er mjög kostnaðarsamt að  gera upp gamalt hús sem ekki hefur verið viðhaldið áratugum saman, en með hjálp fjölskyldna, vina og fagmanna í héraði stefnir í að rekstur hefjist um miðjan maí. Eins og flest gömul hús var Sel ekki hannað með þarfir fatlaðra í huga,\" segir Ingunn og segir ekki aðra möguleika í boði en að byggja við húsið til að geta boðið alla velkomna.

Hún segir fleiri glíma við svipuð verkefni sem ýti undir mismunun. “Það er erfitt að reyna að væla út aðgengisundanþágur líkt og algengt er á veitingastöðum og jafnvel opinberum stofnunum en vitaskuld er ekki boðlegt að fatlaðir eða hreyfihamlaðir njóti ekki sömu möguleika og aðrir.\"

Í viðbyggingunni á að vera salerni fyrir fatlaða ásamt því að rými er aukið í húsinu fyrir hjólastóla. Kostnaður við framkvæmdina var ekki fyrirséður í upphafi og ekki inni í  áætlunum eða efnahag lítils veitingastaðar að sögn Ingunnar. “Það er okkar trú og vissa að til þess að  lítil fyrirtæki eins og okkar í litlu samfélagi dafni vel, verðum við að hjálpast að. Við biðlum því til allra sem það geta að hjálpa okkur við að klára aðstöðuna í Seli með framlögum, smáum sem stórum”, segir Ingunn en söfnun fyrir verkefnið má finna inni á Karolina fund https://www.karolinafund.com/project/view/1299.