Sænska löggan leitar grunaðs isis-liða

Sænska lögreglan leitar nú 25 ára manns frá Írak sem grunaður er um að hafa komið til Svíþjóðar með það í hyggju að fremja hryðjuverk í Evrópu. Talsmaður lögreglunnar segir að maðurinn hafi áður verið í Sýrlandi og barist með liðsmönnum ISIS.

Þetta kemur fram í frétt á visir.is í morgun um málið, en þar segir að sænska öryggislögreglan hafi hækkað viðbúnaðarstig vegna hættu á hryðjuverkum í gær úr „þremur“ í „fjóra“ – næsthæsta stig viðbúnaðar – og hafi það aldrei verið svo hátt í landinu. Að sögn sænskra fjölmiðla var viðbúnaðarstig hækkað eftir að upplýsingar bárust um að maðurinn væri í landinu.

Í fréttinni segir að öryggislögreglan Säpo hafi dreift mynd af manninum til allra lögregluembætta í landinu og hefur verið gefin út handtökuskipun á hendur honum. Aftonbladet og Expressen nafngreina bæði manninn og birta af honum mynd úr öryggismyndavél.

Aftonbladet greinir frá því að maðurinn hafi nú þegar einhverja tengingu við Svíþjóð og hafi komið þangað nýlega, um Þýskaland, að því er fram kemur á visir.is í morgun.