Guðríður Arnardóttir, formaður félags framhaldsskólakennara og fyrrverandi oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, telur Loga Má Einarsson, varaformann flokksins og nýkjörinn á þing fyrir Norðaustur besta kostinn til að byggja flokkinn upp á ný. Hann sé traustur og sveitarstjórnarmaður með gott fylgi á sínu svæði.
Guðríður lét mikið að sér kveða sem oddviti flokksins í Kópavogi á sínum tíma og aðspurð á Þjóðbraut í morgun hvort hún hyggist leggja nýrri forystu lið sagði hún ekkert útilokað, í það minnsta væri hún ekkert endilega hætt í pólitík, eins og hún orðaði það. Hún væri tilbúin að leggja sitt af mörkum með einhverjum hætt.
Hún telur afhroð síns flokks vera hans eigið sjálfskaparvíti og að grasrótin hafi ekki staðið við bakið á formönnum sínum. Hún nefnir Árna Pál Árnasson sérstaklega og segir hann hafa verið góða formann og leiðtoga.
Flokkurinn sem er nú minnstur á þingi, fékk 7,2 prósent atkvæða og hefur þrjú þingsæti í stað níu áður.