Fjármagna öfgasamtök

Sádí Arabía og fleiri ríki við Persaflóa hafa í senn augljós og vaxandi áhrif innan samtaka múslima á Stóra-Bretlandi.

Sagt er að ríkisstjórn Theresa May forsætisráðherra hafi undir höndum skýrslu sem sýni svipaða eða sömu niðurstöðu og skýrsla The Henry Jackson Society.

Talsmenn Sadía Arabíu mótmæla því að nokkuð sé hæft í staðhæfingum sem er að finna í skýrslu The Henry Jackson Society.

Erfitt verður að sannreyna þessar staðhæfingar.

Sadía Arabía gerir tilkall til forystu meðal múslima heimsins í krafti þess að landið er fæðingarstaður Múhammeðs spámanns og þar með er Sádí Arabía vagga íslam.

Þar eru tveir helgistaðir íslam - borgirnar Mekka og Medína.

Milljónir múslima heinmsækja landið árlega sem pílagrímar. Sádar sjálfir aðhyllast stranga túlkun á súnníta íslam. Þessi túlkun kallast wahabismi.

Félagið the Henry Jackson Society er breskt og er í raun þankatankur sem hallst til hægri í stjórnmálum og er nefnt í höfuðið að bandarískum öldungadeildarþingmanni norskrar ættar Henry M. Jackson.

Henry M. Jackson var demókrati og þótti harður á báruni í utanríkismálum. Hann lést árið 1983 og var allan sinn stjórnmálaferil harður gagnrýndandi á mannréttindabrot og var einlægur umhverfissinni og talsmaður náttúrverndar.  

Þankatankurinn hefur lengi gangrýnt mannréttindabrott í ríkjum við Persaflóa.

Það á því ekki að koma á óvart segja stjórnmálaskýrendur að þankatankurinn skuli nú staðhæfa að Sádarnir styðja öfgahópa og hugsnlega hryðjuverkamenn.

Þar með leggur hann til atlögu gegn Sádum. Og ekki í fyrsta sinn.

Hingað til hefur þankatankurinn gagnrýnt stjórnarfar í Sádí Arabíu en nú eru Sádar bendlaðir við fjármögnun öfga og hermdarverka. 

rtá

Nánar www.henryjacksonsociety.org