\"Eftir hrun hætti heilbrigðisráðuneytið að greiða húsnæðis- og fæðiskostnað á Vík og Staðarfelli og breytti meðferðunum þar í göngudeild eða dagdeild. Þannig fækkaði sjúkrarúmum hjá SÁÁ um 60. Með nýjum þjónustusamningi um sjúkrahúsið Vog var sjúkrarúmum þar fækkað um 18.\"
Þetta skrifar Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á Vogi á heimasíðu samtakanna og er ómyrkur í máli: \"Frá hruni hefur sjúkrarúmum hjá SÁÁ fækkað um 78.\"
Hann segir að á síðustu árum hafi verkskipting komist á milli geðdeildar Landspítalans og SÁÁ: \"Geðdeildin hefur einbeitt sér að því að sinna sjúklingum sem eru áfengis- og vímuefnasjúklingar en jafnframt með geðrofssjúkdóma eða aðra erfiða geðsjúkdóma meðan meðferðarstofnanir SÁÁ einbeita sér að þeim sem hafa kvíðaraskanir og þunglyndiseinkenni jafnframt áfengis- og vímuefnasjúkdómnum.\"
Hann vill að landsmenn viti af þessum stórfellda niðurskurði: \"Heilbrigðisráðuneytið hefur því fækkað sjúkrarúmum sem ætluð eru áfengis- og vímuefnasjúklingum til meðferðar úr 265 þegar mest var í lok árs 1985 í 62 rúm í lok árs 2014,\" skrifar Þórarinn Tyrfingsson.