Sáá skapi falskt öryggi

Rúnar Helgi Vignisson, rithöfundur, kennari og þýðandi lýsir efasemdum um fyrirferð meðferðarstöðva á borð við SÁÁ í nýrri facebook-færslu. Hann telur að SÁÁ skapi falskt öryggi.

Tilefnið virðist að enn einn þjóðþekkti Íslendingurinn stígur fram á forsíðu Fréttablaðsins í dag og lýsir straumhvörfum í lífi sínu eftir að hann hætti að drekka.

„Það er orðið býsna algengt að sjá þekkta Íslendinga vitna um áfengisvanda sinn; dæmi um það sjáum við núna í helgarblöðunum. Það bregst ekki að þeir telja sig hafa gengið í endurnýjun lífdaga um leið og þeir skrúfa tappann í. Kemur fávitum eins og mér ekkert á óvart. Um leið verð ég að viðurkenna að ég hef aldrei keypt þetta tal um sjúkdómsvæðingu áfengisneyslunnar að öllu leyti. Jú, menn verða veikir af áfengisdrykkju en allsgáðir taka þeir ákvörðun um að hefja neyslu. Þeir taka líka ákvörðun um að hætta henni, jafnvel undir áhrifum eða í þynnku. Ég ímynda mér líka að hin mikla fyrirferð meðferðarstöðva á borð við SÁÁ skapi falskt öryggi: Ég get alltaf farið í meðferð ef ég missi tökin. Þess vegna styð ég SÁÁ með semingi og kýs heldur að verja mínum fjármunum í forvarnastarf. Það er hins vegar ótrúlega sjaldan falast eftir stuðningi mínum við slíkt starf,“ skrifar rithöfundurinn.

Hörður J. Oddfríðarson sem hefur unnið mikið starf innan SÁÁ bregst við ummælunum og segir að þeir frændur þurfi greinilega að setjast niður og ræða málin. Broskarl fylgir þeirri meldingu.

Rithöfundurinn svarar: \"Ég þykist vita að SÁÁ sinni einhverju forvarnastarfi, beint og óbeint, en ég vil að það verði miklu fyrirferðarmeira. Fyrir því er hins vegar ekki pólitískur stuðningur í samfélaginu, ímynda ég mér.“