Samtök atvinnulífsins segja í tilkynningu sem þau sendi frá sér í dag að þau séu reiðubúin að skoða sérstaka hækkun lægstu launa. Til að það sé mögulegt þurfi að ná sátt um að sú hækkun launa verði ekki fyrirmynd að almennum launahækkunum því það myndi valda mikilli verðbólgu.
Samtökin leggja jafnframt lagt til að farnar verði nýjar leiðir í kjarasamningum; dagvinnulaun verði hækkuð sérstaklega umfram almennar samningsbundnar hækkanir kjarasamninga en jafnframt verði samningsbundnar álagsgreiðslur lækkaðar. Forkólfar SA segja að uppstokkun launakerfa geti orðið farvegur til að koma til móts við kröfur um betri framfærslumöguleika dagvinnulauna og styttri vinnutíma án þess að raska verðstöðugleika líkt og tíðkast í nágrannalöndum Ísland.