Forvígismenn Samtaka atvinnulífsins kalla nú eftir því að breið samstaða náist um kjarabætur á almennum og opinberum vinnumarkaði. Viðæðurnar sem nú standi yfir milli ríkis, atvinnurtekenda og hinna ýmsu stéttarfélaga verði að einhverju leyti sameinaðar.
Þorsteinn Víglundsson framkvæmdastjóri SA segir í Fréttablaðinu í morgun að vart takist að eyða þeirri tortryggni sem gæti milli deilenda öðruvísi en allir aðilar sameinist um meginmarkmið nýrra kjarasamninga. Þar vonast hann til þess að menn horfi fyrst og fremst til aukins kaupmáttar fremur en að hugsa um krónutöluhækkunina eina og sér sem auðveldlega geti hleypt verðbólgunni af stað sem éti þá upp ávinningin af slíkum samningum á stuttum tíma. "Þrjúhundruð þúsund krónurnar verða þá jafn verðlitlar og 200 þúsund krónurnar nú þegar upp er staðið," segir hann við blaðið.