Sa telja atkvæðagreiðslu eflingar ólögmæta

Samtök atvinnulífsins hafa skorað á Eflingu að stöðva nú þegar atkvæðagreiðslu um verkfall sem koma á til framkvæmda 8. mars næstkomandi. SA telja ólöglega staðið að atkvæðagreiðslunni og munu höfða félagsdómsmál gegn Eflingu verði stéttarfélagið ekki við áskorun samtakanna. Frá þessu er greint í frétt á vef SA.

Í fréttinni segir að samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur sé heimilt að láta vinnustöðvun einungis ná til ákveðins hóps félagsmanna en þá sé ákvörðun tekin með atkvæðum þeirra sem vinnustöðvun er ætlað að taka til.

SA vísar til fréttaflutnings dagsins í dag um að Efling áætli að verkfallið nái til 700 félagsmanna en hafi hins vegar boðið yfir 8000 félagsmönnum að taka þátt í atkvæðagreiðslu um það. SA telja það fyrirkomulag ólögmætt enda mætti með þeim hætti fá verkfall samþykkt jafnvel þótt allir þeir sem vinnustöðvun er ætlað að taka til greiði atkvæði gegn verkfalli.

Þá segir að lokum að verði Efling ekki við áskorun Samtaka atvinnulífsins munu samtökin höfða félagsdómsmál gegn stéttarfélaginu. Niðurstaða dómsins mun liggja fyrir áður en verkfalli er ætlað að koma til framkvæmda.