Segir verkalýðsforingja á villigötum

Björgólfur Jóhannsson formaður Samtaka atvinnulífsins sagði í ársfundarræðu sinni í Hörpu í dag að forystumenn stéttarfélaga komast upp með að villa um fyrir almenningi með óskýrum málflutningi af launakjörum félagsmanna. Hann sagði að ef einhverjir teldu að launakröfur þeira myndu ekki hafa áhrif út fyrir þeirra eigin raðir væri það úr takti við veruleikann. "Það er ekk­ert rými fyr­ir laumuf­arþega sem geta rifið sig lausa frá sam­fé­lag­inu,“ sagði hann og áréttaði að sér­hver launa­hækk­un eins hóps leiddi til hærri krafna hjá öðrum.


Ársfundur Samtaka atvinnulífsins í dag er haldinn í skugga yfirvofandi stórátaka á vinnumarkaði en kröfur verkalýðsforystunnar eru tífalt hærri en forsvarsmenn atvinnulífsins hafa sagt að fyrirtæki í landinu þoli í því efnahagsumhverfi sem þau búa við. Björgólfur sagði að viðsemjendur samtakanna væru allir komnir til vits og og ára og þeir vissu hvað ger­ðist þegar launa­hækk­an­ir færu um­fram það sem fyr­ir­tæki geta staðið und­ir.


Hann sagði mik­il­vægt að kjara­samn­ing­ar styddu við al­menna hag­stjórn þar sem mark­miðið væri að tryggja sam­keppn­is­hæfni, fjölg­un starfa og betri lífs­kjör. Hóf­leg­ar launa­hækk­an­ir væru best til þess falln­ar að tryggja það. Tugprósenta launahækkun hafi í för með sér óðaverðbólgu sem komi verst við þá sem lægstar hafa tekjurnar.