Sa kærir verkfallsboðanir eflingar að nýju

Samtök atvinnulífsins munu í dag eða á morgun leggja fram kæru til Félagsdóms vegna fyrirhugaðra verkfallsaðgerða sem voru samþykktar af félagsmönnum Eflingar í gær. Ákvörðunin varðar hluta af þeim aðgerðum sem boðaðar eru að sögn Halldórs Benjamíns Þorbergssonar, framkvæmdastjóra SA. Morgunblaðið og Fréttablaðið greina frá.

Í samþykkt félagsmanna Eflingar felst meðal ann­ars að þeir leggi ekki niður störf að fullu, held­ur sinni ein­göngu hluta venju­bund­inna starfa sinna. „Þetta geng­ur gegn skiln­ingi margra á vinnu­lög­gjöf­inni,“ seg­ir Hall­dór Benja­mín í samtali við Morgunblaðið.

„Þetta varðar hluta af þeim að­gerðum sem boðaðar eru. Við getum sagt að Efling sé að reyna á þan­þol vinnu­lög­gjafarinnar til hins ýtrasta,“ bætir hann við í samtali við Fréttablaðið.

Halldór Benjamín nefnir við Morgunblaðið tilfelli hópbifreiðastjóra, þar sem er boðað að þeir hætti að kanna farmiða farþega en haldi áfram akstri. Honum þykir það ótækt, þar sem ekki verði skilið á milli akst­urs og þess að hleypa farþegum inn í bif­reiðina. Halldór Benjamín seg­ir til­tek­in verkefni starfs­manna órjúf­an­leg­an hluta starfs­ins. Einnig er boðað að hópbifreiðastjór­ar hætti að dæla eldsneyti á bif­reiðar, sem Hall­dór seg­ir að geti skapað almannahættu fari svo að bif­reið stöðvist.

„Með þessu er Efl­ing að marka skörp og ill­verj­andi skil í þróun verk­falls­rétt­ar og beit­ing­ar hans. Það virðist vera sér­stakt keppikefli Efl­ing­ar að láta reyna á mörk lög­legra verk­falla og eðli­legt því að leita úr­sk­urðar Fé­lags­dóms,“ seg­ir Hall­dór að lokum við Morgunblaðið.

SA kærði sem kunnugt er einnig verkfall hótelþerna til Félagsdóms. Það fór fram föstudaginn 8. mars og stóð yfir í 14 klukkustundir eftir að Félagsdómur dæmdi það lögmætt.