Fótboltaþátturinn 433 verður lagður undir landsleikinn mikla milli Íslands og Tékklands á föstudagskvöld - og minna væri það nú; karlalandslið Íslands hefur varla í annan tíma leikið jafn mikilvægan leik í undankeppni EM.
Sigur í leiknum setur Ísland í vægast sagt öfundsverða stöðu og enda þótt jafntefli verði niðurstaðan verða það að teljast hagstæð úrslit, en Ísland hefur aðeins tapað einum leik í riðli sínum í undankeppni EM til þessa, einmitt gegn Tékkum ytra. Það er því vonandi hefndarþorsti að búa sig um í sprækum skrokkum okkar manna sem hafa ekki sagst ætla að spila einhvern varnarleik á föstudag, heldur sækja fram af öllu afli. Eftir því hefur líka verið tekið undanfarin misseri, bæði heima og erlendis, að karlalandsliðið er farið að spila af miklu meira sjálfstrausti en verið hefur um margra árabil, en skýringuna má ef til vill sækja til þess fjölda leikmanna sem leikur með úrvalsliðum erlendis.
Í þættinum verður Rúrík Gíslason landsliðsmaður tekinn tali úti á æfingavellinum, en þess utan verður eitraðasta leikkerfinu velt upp með Ólafi Jóhannessyni fyrrverandi landsliðsþjálfara og spáð í möguleika Íslands í þessum einum mesta stórleik íslensks landsliðs á síðustu árum.
Þátturinn 433 í umsjá Harðar Snævars Jónssonar er á sínum stað klukkan 21:15 í kvöld.