Rúvmálið niðurlægjandi fyrir illuga

Það er svo að segja einsdæmi að ráðherra sé innlyksa í eigin ríkisstjórn með frumvarp sitt, en sú er einmitt staða Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra sem kemst hvorki lönd né strönd með RÚV-mál sitt.

Þessi staða var rædd í Ritstjórunum í gærkvöld þar sem Eyrún Magnúsdóttir, ritstjóri Sunnudagsblaðs Morgunblaðsins og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fréttastjóri Fréttatímans settust á rökstóla með Sigmundi Erni og brutu helstu fréttamál líðandi stundar til mergjar.

Þóra Kristín sagði að þessi staða væri að sönnu niðurlægjandi fyrir Illuga, en hvort hún væri ávísun á að framundan væru hrókeringar í ríkisstjórninni væri svo allt önnur saga; erfitt væri að ráða í verklag stjórnarinnar. Ritstjórarnir voru hins vegar sammála um að afar sjaldgæft væri, ef ekki einsdæmi að ráðherra væri lokaður inni í ríkisstjórn með eitt helsta framlag sitt til stjórnmála líðandi stundar; það hlyti að vera pólitísk óþægilegt fyrir viðkomandi pólitíkus svo ekki væri meira sagt.

Ritstjórana má sjá hér á vef stöðvarinnar, svo sem eins og alla aðra þætti Hringbrautar.