Rúv verði tekið af fjölmiðlamarkaði!

Seint verður fréttastofa Ríkisútvarpsins vænd um æsifréttamennsku en óneitanlega fór hún þó heldur fram úr fréttaefni gærdagsins þegar hún vitnaði í ummæli Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra um nýbirta skýrslu ríkisskipaðrar nefndar um stöðuna á fjölmiðlamarkaði.

Eins og fram hefur komið er ein sjö aðgerða sem nefndin leggur til, svo rétta megi ríkisforskotið í þessum geira, að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði, en í fréttum ríkisvefsins var gengið miklu lengra og sagt að taka ætti RÚV \"af fjölmiðlamarkaði.\"

Það er náttúrlega nokkuð langt til seilst, enda um missögn að ræða - og það gera allir mistök, líka fjölmiðlar, jafnvel þótt opinberir séu.

En hugsanlega hefur þó stöku hægrimaður fengið hér vatn í munninn!