Rúv: útlit fyrir mikinn taprekstur

Stjórn RÚV áætlar að hundraða milljóna króna tap verði á rekstri stofnunarinnar rekstrarárið 2015 til 2016 ef fram fer sem horfir að útvarpsgjald lækki og ekki fáist meira ríkisfé í reksturinn.

Þetta kemur fram í yfirgripsmikilli fréttaskýringu Morgunblaðsins í dag um rekstrarvanda RÚV, en þar kemur fram að yfistjórn RÚV hafi haft væntingar um meiri fjárveitingar frá ríkinu í rekstur stofnunarinnar. Það virðist hins vegar langt í frá í hendi miðað við yfirlýsingar formanns og raunar einnig varaformanns fjárlaganefndar sem tala ekki endilega með sama hætti um fjárþörf RÚV og Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra hefur gert, meðal annars hér á Hringbraut á mánudagskvöld.

Viðmælendur Morgunblaðsins í fyrrnefndri fréttaskýringu telja augljóst að Illugi Gunnarsson hafi gefið Magnúsi Geir Þórðarsyni vilyrði fyrir meira fjármagni í reksturinn þegar sá síðarnefndi tók við stöðu útvarpsstjóra í janúar 2014.

Samkvæmt heimildum blaðsins er áætlað að rekstrargjöld RÚV aukist úr 5,282 milljónum króna rekstrarárið 2014 til 2015 í 5,610 milljónir rekstrarárið 2015 til 2016, eða um 328 milljónir króna.

Ljóst er því að án frekari ríkisaðstoðar muni skuldir RÚV aukast ellegar að ráðast þarf í uppsagnir og endurskipulagningu á rekstri stofnunarinnar, sem jafnframt getur þá varla eða ekki sinnt nauðsynlegum tækjakaupum til að mæta auknum kröfum um myndgæði, en krafa um háskerpuútsendingu er hávær um þessar mundir.