Rúv sektað fyr­ir golfið

RÚV hef­ur verið gert að greiða eina millj­ón krón­ur í stjórn­valds­sekt vegna brota á lög­um um Rík­is­út­varpið, að því er kem­ur fram í ákvörðun Fjöl­miðlanefnd­ar vegna kost­un­ar Golf­sam­bands Íslands á þáttaröðinni Golfið sem var á dag­skrá RÚV síðasta sum­ar.

Sím­inn hf. kvartaði til fjöl­miðlanefnd­ar 23. maí 2018 og taldi fyr­ir­tækið að RÚV hefði brotið gegn lög­um með því að leyfa Golf­sam­band­inu að kosta sjón­varpsþátt­inn Golfið sem sýnd­ur var 22. maí.

Sam­kvæmt lög­um um er RÚV ein­göngu heim­ilt að kosta stóra dag­skráliði og út­send­ing­ar inn­lendra íþróttaviðburða og um­fjöll­un um þá.

Flétta um aðrar hliðar

„Kvað Rík­is­út­varpið um­fjöll­un þátt­anna ótví­rætt falla und­ir heim­ild­ir 7. gr. laga um Rík­is­út­varpið […] til að afla tekna með kost­un við út­send­ingu inn­lendra íþróttaviðburða og um­fjöll­un­ar um þá. Í þátt­un­um væru helstu mót­um sum­ars­ins gerð skil,“ seg­ir í ákvörðun Fjöl­miðlanefnd­ar um af­stöðu RÚV.

Enn frem­ur seg­ir að einnig „væri fléttað inn um­fjöll­un um hinar ýmsu hliðar golfíþrótt­ar­inn­ar, kynn­ingu á golf­regl­um, golf­völl­um, af­rek­skylf­ing­um, golf­kennslu og um­fjöll­un um keppn­is­golf í Eim­skips­mótaröðinni.“