Sjónvarpskonan Brynja Þorgeirsdóttir hefur verið ráðin menningarritstjóri Kastljóssins eftir að menningarþáttur hennar, Djöflaeyjan, verður aflagður og sameinast Kastljósinu.
Samkvæmt tilkynningu frá stofnunni eru breytingarnar liður í að efla umfjöllun RÚV um menningu \"með því að færa hana á besta stað í dagskránni,“ en menningarumfjöllun RÚV verður þar með blandað saman við annað efni Kastljóss á borð við pólitík og þjóðmál.
Brynja hefur að undanförnu verið umsjónarmaður Djöflaeyjunnar, vikulegs sjónvarpsþáttar um menningu og listir: \"Kraftar þess þáttar og dagskrárgerðarfólk mun renna inn í menningarhluta Kastljóss. Til viðbótar bætast við fleiri nýir þáttagerðarmenn og álitsgjafar um menningu og listir. Einnig verður boðið upp á vikulega samantekt menningarefnis á sunnudögum,“ segir í tilkynningu frá RÚV.