Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, gaf eindregið svar í fréttaskýringarþættinum Kvikunni í gærkvöld á Hringbraut, að hann kysi sjálfur að Rúv hyrfi af auglýsingamarkaði. Rök Illuga eru að Rúv eigi ekki að taka þátt í samkeppnisrekstri við aðila á einkamarkaði auk þess sem tekjur Rúv af auglýsingum byðu þeirri hættu heim að dagskráin færi að miðast við slíkar tekjur. Rúv ætti að vera yfir slíkt hafið.
Þegar Illugi var spurður hvort hann væri þá reiðubúinn að bæta Rúv upp tekjutapið af auglýsingum með skattfé, mátti túlka svör hans sem svo að með minni umsvifum myndi skapast fjárhagslegt borð fyrir báru. Ráðherra boðaði að hlutverk Rúv ætti að vera menningartengt og þjóðmálatengt. Hann neitaði ekki að sú hugsun sem lægi á bak við Rás 1 ætti að vera keppikefli Ríkisútvarpsins. Af ummælum Illuga má álykta að sumar deildir Rúv sem veita nú einkaframtakinu harða samkeppni á sumpart ójöfnum forsendum, þar sem Rúv fær milljarða forgjöf með skattfé, kunni að vera í hættu ef vilji ráðherra nær fram að ganga, sem og störf hluta starfsmanna Ríkisútvarpsins.
Fram kom að ráðherra hyggst leita stuðnings fyrir þingsályktunartillögu um breytta stefnu Ríkisútvarpsins í vetur að lokinni vinnu starfshóps.
Kvikan verður endursýnd á Hringbraut í dag og hægt að nálgast þáttinn á tímaflakkinu en þátturinn hverfist að miklu leyti um þær breytingar sem Illugi hefur framkvæmt á menntakerfinu, sem og pólitíska stöðu ráðherra eftir Orku Energy málið.