Rúv fær 222 milljónir aukalega

Samkvæmt fjáraukalögum ársins 2018 fær RÚV alls 222 milljóna framlag til viðbótar þeim 4,2 milljörðum sem stofnunin hafði áður fengið úthlutað. Er framlagið sagt vera leiðrétting á lögbundnu framlagi, þar sem það hafi verið 222 milljónum lægra en ráð var gert fyrir í fjárlögum 2018, í tekjuáætlun um innheimtar tekjur af útvarpsgjaldi.

Framlagið mun hækka á næsta ári, en í fjárlögum 2019 er gert ráð fyrir 12,8 prósenta hækkun á framlagi ríkissjóðs til fjölmiðlunar, eða 534 milljónir króna. Kjarninn greinir frá að áætlaðar tekjur RÚV af auglýsingasölu og kostun árið 2018 séu um 2,5 milljarðar, að því gefnu að tekjur séu svipaðar og árið 2017, auk þeirra viðbótartekna sem HM í Rússlandi hafði í för með sér. Samkvæmt því verði tekjur RÚV rúmlega sjö milljarðar árið 2019.

Nánar á

http://eyjan.dv.is/eyjan/2018/12/20/ruv-faer-222-milljonir-aukalega/