Rútur þreyta íbúa í miðborgunni

Íbúar í miðborginni eru margir hverjir orðnir langþreyttir á ágangi ferðaþjónustufyrirtækja sem freista þess að koma ferðalöngum eins nálægt gistiheimilum í miðborginni og frekast er unnt. Fyrir vikið spúa rúturnar oft dísildaun inn í hús og hýbýli fólks á staðnum.


Málið komst í hámæli um helgina þegar tónlistarmaðurinn Halldór Bragason tók myndir af aðförum eins rútubílstjórans sem að sögn Halldórs var nánast kominn með afturenda bifreiðarinnar inn í íbúð hans. Lögreglumaður sem var að aðstoða bílstjórann í þraut sinni gerði athugasemdir við að Halldór væri að mynda þessar aðfarir og bannaði honum beinlínis að taka mynd af hinu opinbera að störfum.


Ástand samgöngumála í þessum efnum hefur stórversnað á síðustu tveimur árum í miðborginni og er nú orðið beinlínis hættulegt; ekki einasta reyna bílstjórar stórra langferðabíla að þröngva sér inn í mjóga stíga og sund í miðborginni heldur leggja allra stærstu hópferðabílarnir í miðri götu og standa þar á meðan farþegar koma sér út úr rútunni eða inn í hana. Fyrir vikið verðá fólksbílar að fara yfir á öfugan vegarhelming til að koma sér áfram, oft á stöðum þar sem mikil hætta getur skapast vegna blindra horna. Þetta á til dæmis við um hornið á Suðurgötu og Túngötu þar sem langferðabílar teppa umferð iðulega á morgnana.


Borgaryfirvöld kanna nú hvort setja eigi reglur sem banna beinlínis langferðabíla á völdum stöðum í miðborginni, svo sem gert er víða í miðborgum í nágrannalöndunum, en talsverður kosnaður hlytist af slíkri ákvörðun.