Rútur bað styrmi um að fara með hvítan miða til bjarna ben: „segðu honum að þetta geti vel komið til greina“

Upphafið að byggingu Breiðholtsins má rekja til svokallaðs júnísamkomulags sem gert var á milli verkalýðshreyfingarinnar og atvinnurekanda snemmsumars 1964. Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, greinir frá því  í viðtali í þættinum Lífið er lag sem sýndur er á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut í kvöld um hvernig uppbygging Breiðholtsins kom til. Styrmir átti sem ungur maður í nánu sambandi við Bjarna Benediktsson eldri. Lýsir Styrmir því hvernig hann hafi stundum verið sendisveinn á milli tengdaföður síns, Finnboga Rúts Valdimarssonar og svo Bjarna Benediktssonar sem þá var forsætisráðherra.

Á þessum tíma stóðu yfir viðræður um nýja kjarasamninga. Styrmir segir:

„Mér er það mjög minnisstætt að Rútur bað mig um að fara með hvítan miða til Bjarna og sýna honum og sjá hvað hann segði um hann. Á þessum miða voru tillögur Rúts og Guðmundar J. hjá Dagsbrún um byggingu 1250 íbúða fyrir láglaunafólk í Breiðholti sem yrðu hluti að kjarasamningum sem þá voru framundan,“ segir Styrmir og bætir við:

„Ég man að Bjarni sagði við mig, hann las þennan miða og hann sagði við mig:

„Segðu honum að þetta geti vel komið til greina.“

Það varð niðurstaðan. Þannig urðu þessar 1250 íbúðir til.“ Þá segir Styrmir einnig:

„Mér fannst ævintýri að fylgjast með þessu frá byrjun, hvernig þetta varð og hvernig þessar blokkir urðu til á þessum árum.“

Lífið er lag klukkan 20:30 á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut.