Rútubílstjóri dæmdur í sex mánaða fangelsi - tveir létust þegar rútan valt

Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt bílstjóra rútu, sem valt á Suðurlandsvegi í desember 2017, í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi. Einnig mun hann missa ökuréttindi sín í tvö ár. Tveir kínverskir ferðamenn létust þegar rútan valt og tveir aðrir slösuðust alvarlega.  
 
Samkvæmt dómnum var rútan á rúmlega 100 kílómetra hraða rétt fyrir slysið. Bílstjórinn kvaðst fyrir atvikið hafa tekið eftir því að bremsur rútunnar hefi tekið misjafnt í hjólin ásamt því að naglarnir á dekkjum rútunnar hafi ekki verið merkilegir. Samkvæmt niðurstöðu bíltæknirannsóknar kom fram að fjöldi nagla í dekkjum rútunnar hafi verið verulega ábótavant og verið gagnslausir miðað við aðstæður á veginum. Einnig kom fram í rannsókninni að bremsurnar á vinstra framhjóli rútunnar hafi verið nánast óvirkar.
 
Í dómsniðurstöðu er sagt að þegar ástand bifreiðarinnar er skoðað, hraði hennar rétt fyrir slys og ástand vegarins verði að telja nægilega sannað að ákærði hafi með háttsemi sinni orðið valdur að dauða tveggja farþega og alvarlegum meiðslum tveggja annarra.