Rúta með 13 manns fauk af vegi

Engan sakaði þegar rúta með 13 erlenda ferðamenn fauk út af Snæfellsnesvegi í morgun. Rútan var á leið frá Ólafsvík til Stykkishólms og fór út af á veginumm undir Kolgrafamúla við bæinn Berserkseyri.
 
Að sögn lögreglunnar á Vesturlandi var mikil hálka á veginum og rútan hreinlega fauk út af. Björgunarsveitirnar Klakkur og Berserkir fluttu fólkið til byggða. Myndina, sem fylgir þessari frétt, tóku félagar í Klakki á slysstað.
 
Ferðaveður er víða slæmt á aðfangadegi jóla. Stórhríð er víða á fjallvegum á norðan- og austanverðu landinu og sumar leiðir ófærar. Sem dæmi má nefna að skyggni var svo slæmt á Fjarðarheiði í morgun að björunarsveit var beðin að flytja sjúkling frá Egilsstöðum til síns heima á Seyðisfirði.

Þá sagði RÚV frá því í hádeginu að björgnarsveitin Ísólfur á Seyðisfirði fluttti sjúkling sem kom með flugi til Egilsstaða til síns heima á Seyðisfirði í morgun. Ruðningsbíll bíll hjálpaði ökumönnum niður af Fjarðarheiði áður en mokstri þar var hætt. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni á Austurlandi á að lægja í kvöld eða nótt og fjallvegir þar verða ruddir einu sinni á morgun, jóladag, ef aðstæður leyfa.

Eins og Hringbraut gat um í morgun er vegurinn um Ólafsfjarðarmúla lokaður vegna snjóflóðahættu, en snjó kyngir niður á norðanverðu landinu - og víða skefur á svæðinu. Lægja á með kvöldinu

Þá er ófært á Sandvíkurheiði, Þverárfjalli og Siglufjarðarvegi og stórhríð í kringum Blönduós. Á Bröttubrekku er snjóþekja og stórhríð, ófært á Þröskuldum og Klettshálsi en þæfingsfærð á Steingrímsfjarðarheiði. Vegfarendum er bent á að athuga aðstæður í síma 1777 áður en lagt er af stað úr á fannbarða þjóðvegi landsins.