Rússneskir óligarkar gjalda afskiptanna

Bandaríkjastjórn ætlar að beita rússneska auðmenn, suma nána bandamenn Pútíns Rússlandsforseta, hörðum refsiaðgerðum vegna afskipta Rússa af forsetakosningunum 2016. Aðgerðirnar verða væntanlega tilkynntar síðar í vikunni. 

Fréttir af fyrirhuguðum refsiaðgerðum birtust í kjölfar kveðjuræðu H.R. McMasters þjóðaröryggisráðgjafa sem er að láta af störfum. Hann sagði að Bandaríkin hefðu ekki látið Rússa gjalda afskipta sinna nægilega mikið. 

Fréttir komu sömuleiðis af því í dag að rannsóknarteymi Roberts Muellers sérstaks saksóknara í Rússamálum Trumps Bandaríkjaforseta hefði tekið rússneska auðmenn í yfirheyrslur þegar þeir hafa átt leið um Bandaríkin undanfarið. 

Í febrúar birti Mueller ákærur yfir 13 Rússum fyrir þátttöku í aðgerðunum kringum kosningarnar.