Rússbannið kostar allt að 3 milljarða

Byggðastofnun gerir ráð fyrir að tekjutap sjómanna og landverkafólks vegna innflutningsbanns Rússlands á vörur frá Íslandi geti samtals verið á bilinu 990 milljónir til 2.550 milljónir á heilu ár.

Tekjutap sjómanna er áætlað 440 til 1.000 milljónir en talið er að 400 sjómenn verði fyrir tekjutapi. Tekjutap landverkafólks við frystingu er talið geta verið á bilinu frá 860 til 1.870 milljóna króna en talið er að 780 manns verði fyrir tekjutapi.

Frá þessu er greint á vef Skessuhorns og vísar fjölmiðillinn til tilkynningar frá Byggðastofnun. Samtals verða 1.180 sjómenn og landverkafólk fyrir tekjutapi á bilinu 1.300 til 2.900, samkvæmt mati stofnunarinnar, en á móti kemur að vegna aukinnar bræðslu þarf 220 fleiri starfsmenn til starfa í bræðslunum. Laun til þeirra starfsmanna eru áætluð á bilinu frá 310 til 350 milljónir króna.

Það var Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, sem fól Byggðastofnun að meta áhrif Rússabannsins á byggðalög, í kjölfar setningu viðskiptabanns Rússa á Ísland í fyrri hluta síðasta mánaðar. Bannið hefur mikil áhrif á útgerðir landsins en Rússar hafa verið stærsti kaupandi uppsjávarafla íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.

Tekjutap sveitarsjóða vegna lægri útsvarstekna er áætlað á bilinu 143 til 364 milljónir króna og tekjutap vegna lægri aflagjalda er áætlað allt að 43 milljónir.