Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði Rússum í dag að vera viðbúna flaugskeytum Bandaríkjanna í Sýrlandi. Undanfarna daga hefur verið beðið eftir hernaðarlegu svari Bandaríkjahers við meintri eiturefnaárás í Douma.
Í Twitterfærslu í morgun svaraði Trump hótunum sem Rússum hafa viðhaft um að skjóta niður öll flugskeyti í Sýrlandi, hvaðan sem þau koma ef þau ógnuðu lífi rússneskra hermanna og sagði:
„Tilbúnir Rússar því þau munu koma, ný og flott og \"snjöll\". Þið ættuð ekki að vera í samstarfi við gasdrepandi skepnu, sem drepur sitt eigið fólk og nýtur þess.“
Ummælin sem gefa til kynna að hugsanlega geti komið til vopnaðra átaka við Rússa þykja langt í frá til þess fallin að minnka spenna á svæðinu hvað þá skýra stefnu Bandaríkjanna í Sýrlandi, sem virðist verða óljósari með hverjum deginum.