Rússar þurfa á nýjum vinum að halda

Rússar eru búnir að koma sér í óttalegt klandur og einangrast ennþá meira á alþjóðasviði en verið hefur frá því þeir fengu að kenna á því vegna yfirgangsins í Úkraínu og kannski reyna þeir fyrir vikið að verða sér úti um nýja vini - í Tyrklandi og kannski Kína.

Þetta eru pælingar þeirra Egils Helgasonar og Þóris Guðmundssonar, en þessir margreyndu fjölmiðlamenn og fréttastjórar setjast á rökstólana með Sigmundi Erni í Ritstjóraþætti vikunnar þar sem farið er yfir nýjustu vendingar í alþjóðamálunum þar sem ESB-þjóðirnar bakka upp Bretland sem aldrei fyrr með hjálp Donalds Trump í vestri, jafn undarlega og það allt saman hljómar í ljósi Brexit og rússneskra áhrifa á forsetakjörið í Bandaríkjunum. Þeir Egill og Þórir eru sammála um að kuldinn í samskiptum Rússlands, Evrópu og Bandaríkjanna hafi ekki verið meiri um langa hríð og þíða sé ekki í vændum.

Kvennamál forsetans í vestri eru einnig til umræðu, svo og pólitíkin hér heima, á landsvísu og í Reykjavík, en það er líka spurt að því í seinnihluta þáttarins hvort landsmenn hafi eitthvað lært af hruninu þegar tíu ár eru að verða liðin frá þeim ósköpum öllum; hefur pólitíkin náð að breyta einhverja og ætlar atvinnulífið að fara að haga sér á sama hátt og það gerði hvað ákafast og undarlegast fyrir rífum áratug þegar allir sáu veisluna.

Ritstjórarnir eru rumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00 og endursýndir í dag og aðgeengilegir eins og aðrir þættir stöðvarinnar4 á vefnum hringbraut.is undir flipanum sjónvarp.