Rússar reka heim 60 bandaríska diplómata

Rússar hafa svarað samstilltum brottrekstri rúmlega hundrað rússneskra diplómata frá Bandaríkjunum og fjölda Evrópuríkja með því að henda út 60 bandarískum stjórnarerindrekum í Rússlandi og loka ræðisskrifstofu Bandaríkjanna í Sankti Pétursborg.

Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússlands tilkynnti þetta í dag, en talið er nokkuð víst að þau lönd sem vísuðu heim rússneskum sendiráðsstarfsmönnum verði á sama hátt látin gjalda í sömu mynt. Tala brottrekinna Bandaríkjamanna er sú sama og fjöldi Rússa sem fengu reisupassann í Bandaríkjunum og þeir 23 Bretar í Rússlandi sem voru sendir heim eru jafnmargir Rússunum sem Bretar ráku úr landi í upphaflegum refsiaðgerðum fyrir árásina á Skripal feðginin í Salisbury.

Sergei Skripal liggur enn þungt haldinn á sjúkrahúsi en Yulia dóttir hans er sögð á hröðum batavegi.