Rússar loka á ísland: útgerðin í áfalli

Rússar hafa sett viðskiptabann á vörur frá Íslandi og fjórum öðrum löndum. Dimitri Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, tilkynnti þetta á ríkisstjórnarfundi í dag. Þetta kemur fram á vef rússnesku fréttaveitunnar Tass.
 
Í frétt hennar er sagt að Medvedev hafi haft uppi þau orð að löndin fimm hefðu tekið meðvitaða ákvörðun um að styðja þessar aðgerðir ásam tíma og önnur lönd í Evrópu, sem hefðu ríka hagsmuni af Evrópusambandinu, hefðu ekki gert það. 
 
Ákvörðun Rússa er gríðarlegt áfall fyrir íslenskan sjávarútveg, en samtök útgerðarmanna hafa biðlað til stjórnvalda um að breyta um kúrs í utanríkismálum í þágu greinarinnar. 
 
Um eitt þúsund störf og 30 till 35 milljarðar króna eru í húfi hér á landi vegna viðskiptabannsins: \"Því miður virðist það hafa orðið að veruleika sem við óttuðumst. Þeir hagsmunir sem við óttuðumst að væri stefnt í voða eru komnir í þann voða, “ segir Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri SFS við RÚV í dag og bætir því við að næstu skref verði þau að kanna hvort hægt sé að selja þessar afurðir á aðra markaði: \"Menn hafa verið að reyna dreifa áhættunni og leita annarra markaða í nokkurn tíma - þeir markaðir eru því miður litlir og borga verr.“
 

Kolbeinn segir að einnig í fréttinni að athuga verði hvort hægt sé að vinna afurðina, sem farið hefur á Rússlandsmarkað, með öðrum hætti: \"Er hægt að gera eitthvað í samskiptum við Rússland til að milda þessi áhrif?“ Spyr Kolbeinn sem telur að menn hljóti að hugsa allar leiðir til að takmarka það tjón sem nú er yfirvofandi.