Ríkisoddvitar Evrópusambandsins (ESB) ákváðu að framlengja þvingunarðagerðir sambandsins gegn Rússlandi.
Þegar þessar aðgerðir voru fyrst innleiddar tók Ísland þátt í þeim. Og tekur en þá þátt.
Rússland bannað þá innflutnting á óunnum og unnum íslenskum matvælum.
Bannið er en þá í gildi. Og veldur stórskaða á Íslandi.
Nú muna fæstir hversvegna þessar þvingunaraðgerðir voru innleiddar.
Einhverjir muna að þær eru sagðar í þágu Úkraínu.
Aðrir rifja upp að þær eigi að sannfæra Rússa um að skila aftur Krímskaganum til Úkraínu.
Síðan eru þeir sem tengja þær við að farþegaþota var skotin niður sumarið 2014.
Gert er gert.
Rússaland munu í bráð hvorki hætta afskiptum af austurhluta Úkraínu né verður Krímskaga skilað.
Þá er ekki vitað hverjir grönduðu þotuni árið 2014.
Þessi mál leiða hugan að því hvað það merkir í raun og sann að Ísland rekur sjálfstæða utanríkisstefnu í öllum málum.
Á vef Alþingis er að finna greinargóðar frásagnir af alþjóðastarfi þingsins.
Þær frásagnir gefa glöggga mynd að því hvaða skilning þingmenn og ráðherrar leggja í rekstur sjálfstæðrar utanríkisstefnu.