Þetta kemur fram í viðtali Morgunblaðsins við Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins í morgun. Þar segir hann að engar tillögur hafi verið lagðar fram, í ríkisstjórn eða þingflokki, um að afturkalla stuðning við aðgerðir gegn Rússum þrátt fyrir innflutningsbann Rússa á íslenskar afurðir.
Bjarni leggur áherslu á það samt sem áður að halda þurfi afleiðingum af viðskiptabanni Rússa á íslenska hagsmuni til haga og takmarka áhrifin á íslenskt efnahagslíf. Hann segir að hagsmuna- eða áhættumat vegna stuðnings Íslands við efnahagsþvinganir gegn Rússum hafi ekki verið rætt í ríkisstjórn á sínum tíma og slíkri samantekt ekki komið á framfæri.
Bjarni segir að við upphaflegu umræðurnar í ríkisstjórn hafi honum þótt rétt að spyrja hvort Ísland þyrfti að styðja efnahagsþvinganir ESB og Bandaríkjanna gegn Rússum. Ísland hafi þá þegar verið búin að lýsa andstöðu við framferði Rússa og honum hafi ekki þótt sjálfsagt að fylgja ESB í einu og öllu. Fjármálaráðherra segir að allt of stór orð hafi fallið um að grundvallarbreytingar hafi orðið á utanríkisstefnu Íslands. Það séu innantóm orð. Hann rekur slík ummæli til óvildar sumra gagnrýnenda í garð sjávarútvegsfyrirtækja og kvótakerfisins.